Stefna Viðreisnar á Akranesi 2026–2030

Fersk rödd – ný nálgun

Sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026

Viðreisn á Akranesi setur börn og fjölskyldur í forgrunn og byggir allar ákvarðanir á ábyrgri fjármálastjórn, gagnsæi og gæðum í þjónustu bæjarins.

Við komum með ferskan blæ í bæjarmálin með nýja nálgun á gömul vandamál. Við ætlum að framkvæma og við þorum að taka ákvarðanir.

Markmiðið er einfalt en krefjandi:

Akranes á að vera eftirsóknarverðasta bæjarfélag stórhöfuðborgarsvæðisins til að búa í, ala upp börn, reka fyrirtæki og eldast með reisn. Við trúum því að bærinn geti gert miklu betur en hann gerir í dag og við ætlum að sanna það.

Viðreisn vill móta Akranes sem:

  • Barnvænan og fjölskylduvænan bæ þar sem fjölskyldan er í forgrunni og enginn lendir á biðlista eftir nauðsynlegri þjónustu.

  • Bæjarfélag með ábyrg og skilvirk fjármál þar sem hver króna skilar sér aftur í bætta þjónustu.

  • Framsækið og fjölbreytt atvinnulíf sem nýtir einstaka stöðu bæjarins.

  • Bær í þjónustu fólksins.

  • Leikskólinn er fyrsta skólastigið þar sem íbúar framtíðarinnar taka sín fyrstu skref í samfélaginu. Viðreisn setur leikskóla- og velferðarmál barna í algjöran forgang og ætlar að stuðla að því að Akranes verði áfram leiðandi sveitarfélag á Íslandi í farsæld barna.

    Á Akranesi er unnið frábært faglegt starf í leikskólum, grunnskólum og frístund bæjarins. Við ætlum að verja það, efla það og tryggja að fagfólk fái þann stuðning sem þarf til að halda áfram að blómstra. En við getum ekki horft fram hjá því að biðin getur verið löng og þörfin vex með stækkandi bæ. Börnin okkar eiga ekki að þurfa að bíða. Þau eiga að vera gripin strax af fagfólki með tíma, úrræði og umboð til að bregðast við.

    Þegar við fjárfestum í börnum fjárfestum við í framtíðinni. Viðreisn ætlar að tryggja að hvert einasta barn á Akranesi fái þjónustu sem það á rétt á - þegar það þarf hana.

  • Stærsta áskorunin sem margar fjölskyldur á Akranesi standa frammi fyrir er að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar. Á sama tíma stækkar bærinn og þörfin fyrir leikskólapláss vex hraðar en framboðið. Við ætlum að vera á undan kúrfunni, ekki á eftir.

    Áherslur

    • Ráðast í byggingu nýs leikskóla sem nýtist bænum til lengri tíma.

    • Við munum ráðast í markvisst átak til að fækka börnum á hvern starfsmann í leikskólum og tryggja raunhæft barngildi sem kennarar geta unnið eftir.

    • Tryggja að aðstaða sé sambærileg og góð í öllum leikskólum bæjarins - engin mismunun eftir því í hvaða leikskóla barnið er.

    • Markviss endurnýjun leikskólalóða með öryggi og fjölbreytni að leiðarljósi.

    • Hækka niðurgreiðslur á leikskólagjöldum og dagvistun til að létta undir með barnafjölskyldum.

  • Við treystum fagfólkinu sem starfar í skólum bæjarins. Kennarar, leikskólakennarar og starfsfólk frístunda eru sérfræðingar í sínu starfi og þau eiga að fá að sinna því starfi með hag barnanna okkar að leiðarljósi.

    Áherslur

    • Við ætlum að færa fjármagn úr yfirbyggingu bæjarins og beint inn í skólana í viðhald, búnað, faglegan stuðning og betri starfsaðstæður.

    • Styðja við fagþekkingu og endurmenntun starfsfólks skólanna þar sem áframhaldandi ráðningar faglærðra eru forgangsmál.

    • Treysta skólastjórnendum fyrir faglegu hlutverki sínu og efla rekstrar- og fjármálatengda þjónustu við skólanna.

    • Efla samstarf skóla og atvinnulífs á Akranesi með starfsnámi og raunverkefnum sem tengja nemendur við bæinn sinn.

    • Hefja samtal við skólasamfélagið um byggingu nýs grunnskóla á kjörtímabilinu.

  • Sérfræðiþjónusta á að fara þangað sem barnið er en ekki öfugt. Við viljum að sálfræðingar, talmeinafræðingar og iðjuþjálfar starfi innan skólanna sjálfra, þar sem þeir geta unnið í nánu samstarfi við kennara og gripið börnin um leið og þörfin kemur upp.

    Áherslur

    • Ráða sálfræðinga beint inn í skólana svo öll börn á Akranesi hafi aðgang að sálfræðiþjónustu án biðlista.

    • Talmeinafræðingar og iðjuþjálfar starfi í nánu samstarfi við kennara, með skýra verkferla um snemmtæk inngrip.

    • Efla sérfræði stoðþjónustu skólanna þannig að börn með fjölbreyttar þarfir fái stuðning nálægt sér.

    • Sérstakur stuðningur við börn af erlendum uppruna til að tryggja jöfn tækifæri óháð bakgrunni.

  • Íþrótta- og frístundastarf á Akranesi er stolt okkar allra og hornsteinn samfélagsins á Akranesi. Viðreisn vill tryggja að öll börn hafi jafnt aðgengi að þessu starfi, óháð efnahag fjölskyldu, og að frístundastyrkur bæjarins virki raunverulega eins og hann var hannaður til að gera.

    Áherslur

    • Við ætlum að hækka frístundastyrkinn og tryggja sömu upphæð á hvert barn, óháð systkinafjölda.

    • Við ætlum að samþætta skóla- og frístundastarf yngstu barna grunnskóla, líkt og Norðurþing, Ísafjörður og Egilsstaðir hafa gert, með skýrri greiningu og áætlun á kjörtímabilinu.

    • Byggja upp virkt tómstunda- og ungmennahús fyrir elstu nemendur grunnskóla og nemendur framhaldsskóla.

    • Styrkja samstarf við ÍA og önnur íþrótta- og tómstundafélög bæjarins og styðja þau sem stunda jaðaríþróttir, tónlist og skapandi greinar.

  • Rekstur Akraneskaupstaðar á að vera sjálfbær, gagnsær og í þágu grunnþjónustu. Viðreisn ætlar að fara vel með fé íbúa og forgangsraða fjármagni í grunnþjónustu bæjarins.

    Við ætlum að styrkja fjárhagslegan grundvöll bæjarins með því að nýta fjármuni betur og tryggja að íbúar fái sem mest fyrir sitt framlag án þess að auka álögur. Skuldir á hvern íbúa hafa hækkað verulega á liðnu kjörtímabili á sama tíma og álögur á íbúa hækkuðu umtalsvert. Starfsfólki hefur fjölgað umfram íbúa og ekki ljóst hvort sú þróun hafi skilað sér í bættri þjónustu við íbúa bæjarins. Ábyrgur rekstur skiptir okkur gríðarlega miklu máli, enda er hann grundvöllur alls annars. Án ábyrgs rekstrar verður engin öflug þjónusta.

    Viðreisn ætlar að koma á ábyrgum fjármálum með gagnsæi, skilvirkni og skýrri forgangsröðun. Við ætlum að leggja áherslu á lögbundna þjónustu, straumlínulaga stjórnsýsluna og færa þá fjármuni beint inn í þjónustuna sem íbúar finna fyrir. Við viljum ekki hækka álögur á heimilin og fyrirtækin á Akranesi, eins og gert hefur verið á liðnu kjörtímabili, heldur ætlum við að tryggja að íbúar fái hámarks þjónustu fyrir þær álögur sem þeir greiða.

  • Íbúar Akraness eiga að geta séð hvert fjármunir þeirra fara. Þeir eiga að geta rakið stórar ákvarðanir, séð niðurstöður innkaupa og fylgst með framkvæmd fjárhagsáætlunar í rauntíma. Traust byggist á gagnsæi.

    Áherslur

    • Innleiða opið bókhald með aðgengilegum rauntímaupplýsingum um fjárhag bæjarins á vefnum.

    • Birta ársfjórðungslega fjárhagsskýrslu með skýrum lykiltölum um rekstur, skuldir, fjárfestingar og stöðu gagnvart fjárhagsáætlun.

    • Stærri innkaup og framkvæmdir birtast opinberlega með rökstuðningi, sundurliðun og niðurstöðu útboðs.

    • Ársfjórðungsleg úttekt á stöðu fjárhagsáætlunar með viðvörunum strax ef frávik koma fram.

  • Við ætlum að greina stjórnsýslu bæjarins kerfisbundið og finna hvar óskilvirknin liggur, hvar flöskuhálsarnir liggja og hvar er hægt að gera hlutina hraðar og betur. Markmiðið er ekki að skera niður af geðþótta, heldur að finna raunverulega sóun og færa það fjármagn inn í grunnþjónustu sem íbúar finna fyrir.

    Áherslur

    • Við ætlum að stuðla betri þjónustu og skilvirkari ferlum.

    • Færa fjármagn markvisst úr yfirbyggingu bæjarins og inn í skóla, velferð og umhirðu.

    • Markviss stafræn innleiðing í þjónustu þar sem það eykur skilvirkni.

    • Ein gátt í þjónustu: íbúar eiga ekki að þurfa að hringja í fimm manns til að leysa eitt mál heldur eiga að geta fylgst með stöðu sinna mála á einum stað. 

    • Endurskoðun innkaupa bæjarins með skýru markmiði um raunverulegan sparnað sem er birtur íbúum.

  • Bæjarfélag á að einbeita sér að þeirri þjónustu sem því ber skylda til að veita og veita þá þjónustu vel. Bærinn á ekki að standa í samkeppnisrekstri við einkaaðila þegar markaðurinn getur séð um viðkomandi þjónustu jafn vel eða betur. Fasteignir og eignir sem tengjast ekki kjarnastarfsemi bæjarins eiga að seljast og andvirðið nýtt til að lækka skuldir og styrkja veltufjárhlutfallið.

    Áherslur

    • Áhersla á lögbundna þjónustu og forgangsröðun í þágu grunnþjónustu við íbúa.

    • Engin samkeppni við einkaaðila þar sem markaðurinn getur sinnt þjónustu jafn vel.

    • Forðast hallarekstur með skýrri fjármálastjórn, raunsærri áætlanagerð og aga í fjárfestingum.

    • Stuðla að samtali milli ríkis og sveitarfélaga um að hluti fjármagnstekjuskatts skili sér til heimabyggðar og stuðla að því að sveitarfélög fái hlutdeild í tekjum sem myndast af íbúum þeirra.

  • Akranes á inni ótrúleg sóknarfæri á Breið, höfninni, í kringum Landsbankahúsið, Sementsreitnum, Guðlaugu, Langasandi og Garðavelli. Viðreisn ætlar að nýta þau.

    Atvinnulífinu á Akranesi hefur verið lýst sem brothættu og einsleitu þar sem „öll egg séu í sömu körfu". Við getum gert miklu betur. Með réttu umhverfi, hagstæðum lóðum, lægri álögum, hraðari leyfisveitingum og markvissri markaðssetningu getum við laðað að nýjan iðnað, nýsköpun og ferðaþjónustu samhliða því að styrkja það sem fyrir er. Akranes á að vera raunverulegur kostur fyrir atvinnuuppbyggingu.

    Viðreisn vill að bærinn sé þjónustustofnun, ekki eftirlitsstofnun. Við ætlum að taka samtalið við atvinnurekendur bæjarins um hvað þeim vantar, hvaða vandamál þeir eru að eiga við og hvernig bærinn getur stutt við uppbyggingu þeirra. Raunverulega, ekki í orði.

  • Í dag upplifa of margir fyrirtækjaeigendur og frumkvöðlar á Akranesi bæinn sem hindrun frekar en stuðning. Leyfisveitingar taka of langan tíma, ferlar eru óskýrir og svör eru oft af skornum skammti. Við getum gert miklu betur. Viðreisn vill að bærinn sé í hópi þeirra sem ýta undir vöxt. Við ætlum að breyta upplifun þeirra sem vilja skapa störf og byggja upp á Akranesi þannig að þeir fái skjót, skýr og hjálpleg svör í hvert skipti. 

    Áherslur

    • Hagstætt lóðaverð og endurskoðun innviðagjalda til að Akranes sé samkeppnishæfur valkostur fyrir atvinnurekstur.

    • Lækkun fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði, sem hækkaði um 0,215 prósentustig á síðasta kjörtímabili, því það á að vera hagkvæmt að reka fyrirtæki á Akranesi.

    • Stytta afgreiðslutíma á leyfisveitingum með skýrum ferlum og markmiðum um hámarksbiðtíma. Þetta gerum við með markvissri innleiðingu stafrænna lausna og öflugri innri ferlum.

    • Markviss markaðssetning á Akranesi sem stað fyrir atvinnurekstur, nýsköpun og búsetu. Við eigum að vera stolt af því sem við eigum og segja frá því.

  • Breiðin hefur burði til að vera þungamiðja nýsköpunar í sjávartengdri starfsemi og hefur sannað að Akranes getur verið í forystu á þessu sviði. Við viljum halda Breiðinni sterkri og laða að fleiri nýsköpunar- og hátæknifyrirtæki. Næsta Kerecis á að fæðast á Akranesi.

    Áherslur

    • Áframhaldandi og aukinn stuðningur við Þróunarfélagið á Breið og þá nýsköpunarstarfsemi sem þar fer fram.

    • Markviss vinna við að laða að fleiri hátækni- og nýsköpunarfyrirtæki á svæðið, með áherslu á bláa hagkerfið og matvælaframleiðslu.

    • Hafnarsvæðið verði lifandi blanda af atvinnustarfsemi, veitingum og aðdráttarafli fyrir bæði íbúa og gesti.

    • Samstarf við háskóla og rannsóknastofnanir til að tengja nám og atvinnulíf á Akranesi.

  • Við eigum nú þegar perlurnar Guðlaugu, Langasand, Breiðina, vitann, golfvöllinn og einstakt listafólk. Ferðaþjónusta styrkir ekki bara hagkerfi bæjarins heldur styrkir hún verslun, veitingar og menningu. Þetta spilar allt saman. Akranes á að vera áfangastaður, ekki viðkomustaður.

    Áherslur

    • Markviss stefna um hvernig Akranes byggir upp ferðaþjónustu í kringum perlur bæjarins.

    • Landsbankahúsið verður miðstöð endurvakins miðbæjar með hóteli og veitingarekstri sem hluta af lifandi miðbæ.

    • Stækkun Garðavallar í 27 holur og uppbygging þjóðarleikvangs í golfi með tilheyrandi hótel- og þjónustuinnviðum.

    • Stuðningur við menningarlíf, listafólk og viðburði bæjarins sem hluta af ferðaþjónustu.

  • Grundartangi er meðal öflugustu iðnaðarsvæða landsins, mikilvægt atvinnusvæði fyrir okkur Skagamenn og tækifæri liggja í því að þróa svæðið sem fyrirmynd í umhverfisvænum iðnaði. Við styðjum heilshugar uppbyggingu græna iðngarðsins með hringrásarhugsun. 

    Áherslur

    • Virkur stuðningur við græna iðngarðinn á Grundartanga og hringrásarverkefnin sem þar eru í mótun.

    • Samstarf við Þróunarfélagið á Grundartanga um áframhaldandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu.  

    • Viðreisn vill stuðla að öflugri uppbyggingu Grundartangasvæðisins með góðu samtali og virki samvinnu með nærliggjandi sveitarfélögum.

  • Við mælum samfélag á því hvernig það kemur fram við þá sem þurfa mest á stuðningi að halda. Akranes á að vera bær sem grípur fólk áður en það dettur -  ekki eftir á.

    Biðlistar eftir búsetuúrræðum fyrir fatlaða á Akranesi hafa verið of langir allt of lengi. Viðreisn ætlar að stytta þessar biðraðir og tryggja að þjónusta bæjarins sé aðgengileg, samþætt og mannúðleg.

  • Uppbygging búsetuúrræða fyrir fatlaða einstaklinga hefur dregist á langinn. Við ætlum að klára þetta verkefni á kjörtímabilinu og ekki láta það halda áfram að dragast ár eftir ár. Þjónusta á að byggja á virðingu fyrir sjálfstæði og mannréttindum og vera veitt í nærumhverfi fólks þegar mögulegt er.

    Áherslur

    • Útrýming biðlista í búsetuúrræðum fyrir fatlaða einstaklinga, uppbygging íbúða klárast á kjörtímabilinu.

    • Fjölbreytt búsetuúrræði sem virða sjálfstæði og mannréttindi hvers einstaklings.

    • Fjölga faglærðu fólki sem sinnir þjónustu við fólk með stuðningsþarfir.

    • Almennt viðhald og endurbætur á aðgengi fyrir fatlaða um bæinn eins og t.d. gangstéttar, merkingar, innganga opinberra bygginga.

    • Úttekt á aðgengi með hliðsjón af bæði sýnilegri og ósýnilegri fötlun.

    • Styðja atvinnuþátttöku og virka þátttöku fólks með fötlun í samfélaginu.

  • Eldra fólk á Akranesi á að eiga raunverulegt val um það hvernig það lifir síðari hluta ævinnar. Öflug heimaþjónusta, fjölbreytt búsetuúrræði og virkt félagslíf gera fólki kleift að búa sem lengst heima og halda áfram að vera virkur þátttakandi í samfélaginu. Við í Viðreisn vitum að eldra fólk er virði en ekki byrði.

    Áherslur

    • Fjölgun þjónustuíbúða fyrir 67 ára og eldri í takt við vaxandi þörf og aldursamsetningu bæjarins.

    • Samræmd heimaþjónusta og heimahjúkrun með áherslu á að fólk geti búið sem lengst heima við gæði og öryggi.

    • Innleiða stafrænar lausnir í heimahjúkrun til að efla skilvirkni og fjölga snertiflötum við skjólstæðinga.

    • Raunverulegt valfrelsi í matarþjónustu við eldra fólk.

    • Efld heilsuefling og virkni til að draga úr félagslegri einangrun eldri íbúa.

    • Stuðningur við atvinnuþátttöku eldra fólks og sveigjanleg tækifæri til áframhaldandi vinnu.

  • Við viljum styrkja grunnþjónustu bæjarins þannig að fjölskyldur á Akranesi finni að bærinn er með þeim í liði. Styttri boðleiðir, skýrari ferlar og raunverulegur stuðningur þegar fólk þarf á honum að halda.

    Áherslur

    • Styrking grunnþjónustu er forgangsverkefni í mannafla og fjármagni með áherslu á farsæld barna, barnavernd og félagsþjónustu.

    • Styttri boðleiðir og skýrari ferlar í samþættri þjónustu, fólk á ekki að villast í kerfinu.

    • Aðgengileg heilsuefling, tómstundir og íþróttir fyrir alla aldurshópa.

    • Foreldrafræðsla og stuðningur við fjölskyldur sem forvarnaraðgerð með það að markmiði að koma í veg fyrir vandamál áður en þau koma upp.

  • Skipulag mótar daglegt líf bæjarbúa. Það skiptir máli hvar við byggjum, hvernig við byggjum og hvað fylgir með. Viðreisn vill byggja bæ sem heldur í sín sérkenni, virkar vel og eldist með sóma.

    Við ætlum að fegra innkomuna í bæinn með glæsilegu listaverki eftir heimamenn og reisa skilti sem ber merki um sköpunarkraft, sögu og stolt Akurnesinga og sem tekur gestum og íbúum fagnandi.

    Við viljum skýra og raunhæfa framtíðarsýn í húsnæðismálum sem tekur mið af fjölbreyttum þörfum íbúa, ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu skref, fjölskyldum í vexti, eldra fólki sem vill flytja sig til innan bæjarins. 

    Leyfisveitingar þurfa að verða hraðari. Fólk sem vill byggja eða fjárfesta á Akranesi á ekki að bíða mánuðum saman eftir svörum frá bænum. Á sama tíma ætlum við ekki að fórna karakter bæjarins fyrir hraða eða sérhagsmuni því Akranes á að vera áfram bær, ekki úthverfi.

  • Skipulagsmál sveitarfélaga er ákvörðun um hvernig bæjarbúar lifa lífinu sínu. Hvar börnin leika sér, hve langt er í næstu verslun, hvort göturnar eru öruggar og hvort karakter bæjarins lifir áfram. Viðreisn vill skipulag sem er byggt á gæðum, heildrænni nálgun og virðingu fyrir þeim sem búa hér en ekki á þörfum þeirra sem standa fyrir einni framkvæmd í einu. Við ætlum að gæta að því að hraði í afgreiðslu sé aldrei á kostnað vandvirkni í ákvörðunum. 

    Áherslur

    • Styttri afgreiðslutímar skipulagsmála með skýrum ferlum og innleiðingu stafrænna lausna.

    • Skipulag sem byggir á ítarlegum greiningum, stafrænum lausnum og gagnsæi.

    • Engar kúvendingar frá aðalskipulagi í þágu sérhagsmuna einstakra byggingaraðila.

    • Nýta stafræna tækni til að kynna íbúum deiliskipulagsbreytingar.

    • Gott samstarf og samtal við lóðarhafa, framkvæmdaraðila og íbúa.

  • Akranes á að vera bær þar sem fólk getur búið á öllum stigum lífsins. Ungmenni sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð, fjölskyldur sem þurfa meira rými, eldra fólkið sem vill flytja sig til en vera áfram í bænum sínum. Í dag er framboðið of þröngt og áætlanirnar of skammsýnar. Viðreisn ætlar að breyta því með raunhæfri húsnæðisáætlun sem er unnin í opnu samtali við íbúa og tekur á þörfum allra.

    Áherslur

    • Ný húsnæðisáætlun 2027–2033 unnin á fyrsta ári kjörtímabilsins með skýrri framtíðarsýn.

    • Fjölbreytt framboð íbúða: hagkvæmar íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur, fjölskylduíbúðir og þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk.

    • Eldra fólk á að hafa raunverulegt og fjölbreytt val til að flytja sig til innan bæjarins þegar aðstæður breytast.

    • Stöðugt framboð bæði íbúðar- og atvinnulóða.

  • Innviðir Akraneskaupstaðar, götur, gangstéttar, skólalóðir, leikvellir og almenningsrými þurfa markvissara viðhald. Það sem virkar ekki á að laga. Það sem er farið að hrörna á að endurnýja áður en viðgerðin verður tvöfalt dýrari.

    Áherslur

    • Markviss framkvæmdaáætlun fyrir viðhald gatna, gangstíga og merkinga gerð aðgengileg fyrir bæjarbúa.

    • Framkvæmdaáætlun fyrir skólalóðir sem tryggir jafnt viðhald allra skólalóða bæjarins.

    • Við ætlum að stilla upp viðhaldsáætlun fyrir allar fasteignir bæjarins.

    • Endurnýjun leikvalla og opinna svæða sem eiga að vera öruggir og aðlaðandi fyrir börn og fjölskyldur.

    • Aukið fjármagn í reglubundið viðhald og eftirlit á húsnæði og lóðum leik- og grunnskóla.

    • Íbúar hafa virka rödd þegar kemur að ákvörðunum um viðhald innviða

    • Forvarnir í viðhaldi þar sem við leysum vandamál áður en þau verða dýr.

  • Samgöngur eru ekki bara innviðir heldur þær eru forsenda þess að atvinnulíf, skólastarf og daglegt líf virki. Hvalfjarðargöngin eru lífæð Akraness og við sættum okkur ekki við að ástand þeirra sé óvissuþáttur. Almenningssamgöngur til og frá höfuðborgarsvæðinu þurfa að verða áreiðanlegri og tíðari.

    Áherslur

    • Öruggar leiðir barna í skóla og frístundir eru lykilatriði.

    • Samfellt net göngu- og hjólastíga milli hverfa á Akranesi.

    • Efla lýsingu, viðhald, hreinsun og snjómokstur á gangstígum og götum bæjarins.

    • Gott aðgengi fyrir hjólandi, gangandi og hreyfihamlaða.

  • Akranes á að vera grænt sveitarfélag í verki, ekki bara í orði. Það þýðir mælanleg markmið, raunhæfar aðgerðir og markvissar fjárfestingar í innviðum sem draga úr umhverfisáhrifum og auka lífsgæði.

    Áherslur

    • Akranes sem grænt sveitarfélag með skýrum, mælanlegum markmiðum í loftslagsmálum.

    • Kolefnisbókhald innleitt í allar nýjar framkvæmdir á vegum bæjarins.

    • Metnaðarfull flokkunar- og endurvinnslustefna með áherslu á einfaldleika fyrir íbúa.

    • Fjárfestingar í orkusparnaði sem bæði draga úr umhverfisáhrifum og spara peninga.

    • Meiri trjárækt, græn útivistarsvæði og vernd náttúruperlur bæjarins.

    • Betra aðgengi að útivistarsvæðum fyrir alla aldurshópa.

  • Bæjarstjórn á að vinna fyrir íbúa ekki öfugt. Við tökum hlutverki okkar sem þjónustufulltrúar bæjarins alvarlega og nálgumst málefni bæjarbúa í augnhæð.

    Viðreisn trúir því að bestu ákvarðanirnar séu teknar þegar íbúar hafa raunveruleg áhrif. Ekki bara fyrir kosningar, heldur alltaf. Við ætlum að efla íbúalýðræði á Akranesi með virkum samráðsvettvangi, skýrum upplýsingum og einlægu samtali.

    Áherslur

    • Virkur samráðsvettvangur þar sem íbúar geta haft áhrif á stærri ákvarðanir sem snerta þá.

    • Skilvirkt samráðskerfi að fyrirmynd Betri Reykjavíkur eða Betri Hafnarfjörður þar sem íbúar geta lagt fram tillögur og séð hvernig þeim er fylgt eftir.

    • Upplýsingar um bæjarstjórnarfundi, ákvarðanir og fjárhag birtar á aðgengilegan og skiljanlegan hátt.

    • Virkt ungmennaráð með raunverulegt umboð í málum sem snerta börn og ungmenni.

    • Greining á áhrifum ákvarðana bæjarins á lífsgæði íbúa á að vera hluti af ákvörðunartökunni.

  • Viðreisn á Akranesi er ferskt og nýtt framboð. Við erum fjölskyldufólk með ólíkan bakgrunn og reynslu og það er okkar styrkur. Við höfum jákvæðni að leiðarljósi en erum tilbúin að taka erfiðar ákvarðanir. Við ætlum að hlusta á bæjarbúa með áhuga og metnaði og við ætlum að framkvæma.

    • Við ætlum að setja börnin í forgrunn allra ákvarðana.

    • Við ætlum að fara vel með fé íbúa og verja skattfé af ábyrgð.

    • Við ætlum að byggja kraftmikið og fjölbreytt atvinnulíf sem nýtir einstaka stöðu Akraness.

    • Við ætlum að tryggja velferðarþjónustu sem grípur fólk strax.

    • Við ætlum að starfa af heiðarleika, gagnsæi og fagmennsku.

    • Við ætlum að byggja sjálfbæran, mannúðlegan og framsækinn bæ fyrir framtíðina.

Væri ekki gaman að setja X við C þann 16. maí 2026

Viðreisn á Akranesi